Barnatryggingar

Kaupa barnatryggingu

Einfalt að sækja um, ekkert áhættumat enda eiga öll börn, stór sem smá, rétt á vátryggingu

Vátrygging er frá LLOYD’S fyrir börn frá 1 mánaða til 22ja ára.


  • Verndar barnið þitt fyrir fjárhagslegu tjóni, vegna slyss í leik, í keppni, í starfi eða vegna alvarlegra sjúkdóma. 
  • Vátryggt er launatap foreldra frá sjöunda degi ef barn þarfnast sólarhrings umönnunar vegna veikinda eða slyss. 
  • Barnið fær einfalda en góða sjúkdómavernd til viðbótar við örorkubætur. Vátryggt er krabbamein, sykursýki 1  slímseigjusjúkdómur, liðagigt, Alnæmi, alvarlegur höfuðáverki og alvarlegur bruni.
  • Heimilisbreyting vegna aðgengis heima fyrir, ef barn lendir í hjólastól þá aðstoðum við með greiðslur vegna breytinga.
  • Útfararkostnaður er greiddur að hluta eða að öllu leyti ef barn fellur frá.
  • Einfalt að sækja um, ekkert áhættumat, öll börn fá vátryggingu.


Hagstæð

Iðgjald vátryggingarinnar er aðeins 1990 krónur á mánuði. 

Afsláttur

Veittur er 10% systkinaafsláttur ef einn er greiðandi.

Bótaþættir vátyggingar eru

Grunn örorka vegna slyss

40.000.000

Grunn örorka vegna sjúkdóma

40.000.000

Sjúkdómatrygging

3.500.000

Útfararkostnaður

1.500.000

Heimilisbreyting vegna aðgengis

2.500.000

Dagpeningar til foreldra vegna slyss eða sjúkdóma barns, greitt á viku - biðtími 7 dagar - bætur í allt að 100 daga.

50.000

Vátryggingin nær hvorki til slysa eða sjúkdóma sem sem áttu sér stað eða voru greindir fyrir gildistöku hennar. Tjón af völdum notkunar skrásetts ökutækis eru undanskilin enda á barnið rétt á bótum úr lögbundnum ökutækjatryggingum. Vátryggingin nær ekki til slysa er verða í hvers konar akstursíþróttum, bardagaíþróttum, fjallaklifri, klettaklifri, bjargsigi, froskköfun, drekaflugi, svifflugi og fallhlífarstökki hjá 16 ára og eldri.

Nánari skilgreining einstakra bótaþátta er í skilmálum hér að neðan. Skilmálar gilda til 31.desember 2023.

Share by: